Talandi um tónleika. Einn gallsúran mánudagsmorgun fannst mér ekkert mikilvægara en að sniðganga verkefnið sem ég var að vinna og þess í stað gera lista yfir alla tónleika sem ég hef farið á. Þetta er útkoman(neðst er best). Nú sef ég betur vitandi þess að þegar ég er orðinn fúlt gleymið gamalmenni þá get ég glatt barnabörn mín með því fletta uppí listanum og segja þeim frá stolnum Black Death dósum blönduðum í Appelsín og filterslausum Camel á Pönk ‘98 í norðurkjallaranum sem urðu þeir síðustu eftir að gæslan fann sprautu inná klósettinu. Hverjir voru aftur með?
Ég má til með að benda Dylan aðdáendum á að Rás 2 er á sunnudögum klukkan 20:00 að endurflytja þætti um hann frá árinu 1989 sem bera nafnið Slægur fer gaur með gígju og eru í umsjón sjálfs Magnúsar Þórs Jónsonar, öðru nafni Megas. Í sjö þáttum fer Megas yfir ævi- og tónlistarferil Dylans og spilar þess á milli plöturnar hans í bland við áhrifavalda. Þrír þættir eru búnir nú þegar en það er hægt að hlusta á þá hér.
January 24th, 2007 | 2 svör