æPhone frá apple

iPhone

Á MacWorld ráðstefnunni í gær kynnti Steve Jobs iPhone frá apple. Ég verð að viðurkenna að ég gæti alveg hugsað mér einn svona ofaní vasann minn. Hann kemur samt ekki til evrópu fyrr en næstu jól sem er miður. Það virðist sem ekkert hafi verið sparað: multitouch snertiskjár, mp3, CoverFlow, video, 2mp myndavél, wifi, bluetooth, edge, google maps, allskyns sensorar og allt keyrir þetta á mac os X stýrikerfinu sem þýðir safari, mail, calander, ichat, widgets og det hele. Lesið meira um æFóninn hér og ef áhugi er fyrir hendi er hægt að horfa á svartrúllukragaklædda Steve Jobs í hvítum nike hlauparaskóm kynna símann hér með slædsjó. Og svo eru nokkrar slick myndir af honum hér.
Annað merkilegt sem Stíví kynnti var Apple TV sem lítur út fyrir að vera nokkuð spennandi græja.

January 10th, 2007 | Haukur

« Jákvæður í dag! | Jólagjöfin í ár »

Engin svör komin

  • Af netinu