Á gamlárskvöld leit ég við í partý hjá Viðari. Í sömu mund og ég kom inn dreif Biggi mig útá gólf í dans við lag sem ég kannaðist svo mikið við en gat ekki komið því fyrir mig. Fékk svo að vita að þetta væri nýmóðins gamlárslag eftir baggalút en hér er myndskeið sem Guffi náði þar sem ég reyni örvæntingarfullt að muna hvaðan ég hef heyrt þetta lag.
Frábært hvernig Biggi slúttar þessu Gallagher-papparazzi stæl. En hvað um það, þetta er búið að angra mig síðan og ég hef ómögulega getað munað hvaðan ég hef heyrt þetta lag áður. Þar til í dag að ég var að renna yfir hið ágæta mp3 blogg Egils Harðar að ég sá ljósið. Upprunalega lagið er af safnplötunni The In-Kraut : Hip Shaking Grooves Made in Germany 1966-1974 og heitir Molotov Cocktail Party og er flutt af Vivi Bach og Dietmar Schönherr. Guð má vita hvar ég hef verið að hlusta á þessa plötu. Ætla vera leiðinlegur og segja að upprunalega lagið er nokkuð betra en ábreiða baggalúts en engu að síður öfundsverður gullgröftur. Hvað finnst þér?
[MP3] Vivi Bach og Dietmar Schönherr - Molotow Cocktail Party
Egill fær að lokum prik.
January 16th, 2007 | Haukur
hmmm… með lykilorði?
Haukur — January 19, 2007 @ 14:27