Sandi og Sushi og Chilli og Cash

SandiSushi
Þegar ég borðaði í fyrsta skipti sushi var mér kennt að mikilvægt væri að njóta hvers og eins bita. Til að hver og einn biti fengi verðskuldaða athygli væri mikilvægt að fá sér svona sæt engiferblöð á milli til að hreinsa braðlaukana. Þar að auki hjálpa víst engiferblöðin að melta alla þessa góðu sushi bita. Þetta var mér ofarlega í huga um helgina þegar Martin bauð mér með á tónleika með Sandi Thom á litla Vega. Sandi Thom er enn eitt sínger/songvræter nafnið sem hefur fengið furðumikla athygli í rotnandi myspace samfélaginu. Búið er að smella nokkrum Hanson bræðra lúkkalæk í bakköpp band og skipuleggja heimstúr. Aðallagið er eitthvað á þessa leið: “Ég vild’ég væri pönkrokkari me’blóm í hárinu!” Vart þörf á frekari lýsingu á óhugnuðinum. Túrinn er það mikilfenglegur að þegar ekki gekk að selja miða á tónleikana þá var gripið til þess ráðs að gefa miðana í útvarpinu. Enginn hringdi inn og því hringdi útvarpskonan, frænka Martins, örvæntingarfull í hann og bað hann um að hringja inn til að bjarga málum. Þarna stöndum við svo, ég, Martin og Helgi Páll innan um nokkrar kvennkyns 18 ára mæspeis notendur og látum flóð af einsleitum, litlausum og ófrumlegum lögum dynja á okkur ásamt því að fylgjast með hressu hanson bræðra lúkklækunum reyna örvæntingarfullt að skapa stemningu með taktföstu handaklappi og fyrirframgreiddu session-hljóðfæraleikara brosi þegar það rennur upp fyrir mér hvað þetta séu mikilvægir tónleikar fyrir mig. Þetta eru tónleikarnir sem sýna mér hvernig tónleikar eiga ekki að vera og kenna mér að meta alla hinu góðu tónleikana sem ég hef farið á eða mun fara á. Þar með er Sandi Thom engiferblaðið sem hreinsar braðlaukana mína og gerir mig aftur tilbúinn fyrir en jafnframt gagríninn á næsta gómsæta tónleika-bita. Ef marka má japönsku sushi hefðina mun Sandi Thom einnig hjálpa mér að melta komandi sushi bita. Ég verð því Martin ævinlega þakklátur fyrir bjóða mér á þennan ófögnuð og gera mig mótækilegan fyrir þessari vitrun.

Eftir tónleikana og heimsókn á öldurhús Istedgade höfðu Jonas og félagar hans slegist í hópinn. Inná langt-undir-meðallagi kebabhúsi ákvað ég að sýna hversu mikið hetjubúnt ég er og storka örlögunum með því að taka áskorun um að gleypa heila matskeið af rótsterkri og svitaframkallandi chilli-mauk-olíu sem liggur eftirlitslaus á borðunum og því engin leið að vita hvaða auka Istedgade konfektmola hún hefur að geyma. Í vinning fékk ég einn hund (slangur fyrir 100 danskar krónur sem ég lærði sama kvöld) og vakti þetta mikinn fögnuð meðal félagana. Þrátt fyrir að hvatvísi og vitgrynni leiti oft á mig við minnstu ölvun vissi ég þó þarna um leið að þessi fagnaðarlæti stöfuðu ekki af því hve fyndinn ég væri heldur voru félagarnir að öllum líkindum komnir einu skrefi lengra en ég og farnir að huga á dásamlegum klósettferðum sem ég ætti eftir að eiga daginn eftir með Ring of Fire með Johnny Cash sem aðal sándtrakk.
Á næstkomandi föstudag kem ég til Íslands og verð í heilar þrjár vikur. Það er met tími síðan ég flutti hingað í mörkina fyrir þremur og hálfu ári. Það eru þó ekki miklar líkur á að hitta chilli étandi trúðinn (sem grætur innra með sér) á öldurhúsum eða í öðrum slíkum fagnaði þar sem fyrir liggur mikil vera á Þjóðarbókhlöðunni. Af Þjóðarbókhlöðunni á ég skrítnar minningar frá því að ég var lítill og pabbi var að byggja hana og lánaði hana undir upptökur á batman atriði með Hr. Ólafi Ragnari Grímsyni fyrir áramótaskaupið. Hver ætli verði áhrifin af því á Bs verkefnið?

January 23rd, 2007 | 1 svar

Gamlárspartý

Á gamlárskvöld leit ég við í partý hjá Viðari. Í sömu mund og ég kom inn dreif Biggi mig útá gólf í dans við lag sem ég kannaðist svo mikið við en gat ekki komið því fyrir mig. Fékk svo að vita að þetta væri nýmóðins gamlárslag eftir baggalút en hér er myndskeið sem Guffi náði þar sem ég reyni örvæntingarfullt að muna hvaðan ég hef heyrt þetta lag.

Frábært hvernig Biggi slúttar þessu Gallagher-papparazzi stæl. En hvað um það, þetta er búið að angra mig síðan og ég hef ómögulega getað munað hvaðan ég hef heyrt þetta lag áður. Þar til í dag að ég var að renna yfir hið ágæta mp3 blogg Egils Harðar að ég sá ljósið. Upprunalega lagið er af safnplötunni The In-Kraut : Hip Shaking Grooves Made in Germany 1966-1974 og heitir Molotov Cocktail Party og er flutt af Vivi Bach og Dietmar Schönherr. Guð má vita hvar ég hef verið að hlusta á þessa plötu. Ætla vera leiðinlegur og segja að upprunalega lagið er nokkuð betra en ábreiða baggalúts en engu að síður öfundsverður gullgröftur. Hvað finnst þér?

[MP3] Vivi Bach og Dietmar Schönherr - Molotow Cocktail Party

Egill fær að lokum prik.

January 16th, 2007 | 4 svör

  • Af netinu