Hef fengið ábendingu um að það hafi ekki verið hægt að kommenta á síðuna. Búinn að laga það og því opinn í alla enda fyrir æstum múginum. Komiði bara!!!
January 16th, 2007 | Engin svör
Hef fengið ábendingu um að það hafi ekki verið hægt að kommenta á síðuna. Búinn að laga það og því opinn í alla enda fyrir æstum múginum. Komiði bara!!!
January 16th, 2007 | Engin svör
Ég horfði á heimildarmynd Billy Corben, Cocaine Cowboys, um helgina. Myndin fjallar um kólumbísku og kúbönsku kókaín barónana sem á áttunda og níunda áratugnum breyttu Miami úr friðsælum eldriborgarasumarleyfisstað í hættulegustu borg hnattarins sem varð innblástur og fyrirmynd kvikmynda og þátta eins og Scarface, Miami Vice og fleiri. Corben tekur viðtöl við aðal smyglarana, harðneskju-brjóstsviða-löggurnar, samviskulausu leigumorðingjana og fleiri sem stóðu í miðjunni á þessu brjálæði þar sem þeir lýsa í smáatriðum háþróuðum smygl aðferðum sem frá Dr. Q til að líta eftir bremsuförum í nærbuxunum, spreyjandi-vélbyssu-morðunum, hvernig Fidel Castro losaði Kúbu við alla glæpamenn, nauðgara, barnaníðinga, geðveika, samkynhnegða og fatlaða, hvernig spilltasta lögregla Bandaríkjana varð til og hvernig mátti finna kókaínleyfar á 90% af eins dollara seðlum í borginni. Til að skapa rétta stemningu var svo sándtrakkströllið Jan Hammer (Knight Rider, Miami Vice) fenginn til að gera syntheseiser mússík fyrir myndana. Ég sat sleginn en tonnataks-límdur við myndina frá fyrstu mínutu og mæli því eindregið með þessari bitastæðu og áhuguverðu heimildarmynd.
Ég þjáist af undir-pressu-heiðarleika. Það lýsir sér þannig að þegar ég virkilega þarf að hraðljúga til að bjarga lífi allra sannkristinna nunna sem vinna sjálfboðavinnu í þróunarríkjunum þá get ég með engu móti fundið uppá neinu nema himinbláa sannleikanum. Þetta hefur herjað mig lengi vel og á því var engin breyting í gærkvöldi þegar DR Licence (afnotagjalda eftirlitsmennirnir frá danska ríkissjónkanum) bönkuðu uppá hjá mér og spurðu mig kvast “Áttu sjónvarp!!!”. Það vellur heilagt vatn úr munnkirtlunum mínum sem valda því að sama hvað heilinn í mér öskrar “skrökvaðu drengur!!!” þá hefði ég geta bent DR Licence manninum á alla þá sem búa á ganginum og eiga sjónvarp en borga ekki afnotagjöldin hefði hann spurt. Gat ekki sagt að ég ætti ekki heima þarna eða ég væri blindur eða ég væri grænlendingur eða einfaldlega lokað hurðinni á hann. Nei ég sagði bara tak skal du har þegar hann rétti mér reikninginn eftir að hafa jánkað því að ég væri með sjónvarp. Það er á þessum stundum sem ég naga á mér handabökin yfir að vera ekki búinn að setja upp gjægjugat og tengja 220 volt við dyrabjölluna.
January 15th, 2007 | 1 svar