Tvífarar

Sunna

Sunna Dögg Legowitz

einsteinsmall

Albert Einstein

January 15th, 2007 | Engin svör

Jákvæður í dag!

Þá er ég kominn aftur útá eyjuna Amager, Manhattan Kaupmannahafnar, eftir frábært jólafrí með frábæru fólki. Það er óvenju hlýtt í veðri miðað við árstíma sem er mér að skapi. Kaupmannahöfn á það til að verða ansi köld í janúar, febrúar og smá í mars. Kaldari en konan sem stjórnar The Weekest Link á BBC. Satt best að segja finnst mér stundum kaldara en á Íslandi vegna rakans. Ég er að tala um svona kulda sem maður klæðir ekki af sér, hann bara stingur inn að beini eins og þegar rauðhærða járnfrúin segir “You are the weekest link, goodbye”. Svo hjálpa ekki illa kynnt og illa einangruð húsin. Talandi um húsin. Á kollegíinu mínu, Rassi Nils, er nýbúið að gera allt upp. Hæðin mín, 4.sal, fékk svaka fínt felles eldhús og fullt af peningum sem voru notaðir til að kaupa desægn húsgögn og fleiri hluti sem eiga heima í módern eldhúsum. Fyrsta sem ég svo sé þegar ég kem í eldhúsið eftir fríið er tilkynning til allra frá einum strák sem er nýfluttur á ganginn utan af landi. Þar leggur hann til að gera eldhúsið personeligt og venligt for beboerne með því að spreyja á vegginn grafítí verk eftir sjálfan sig. Undir tilkynningunni er svo lítill miði með uppkasti af herlegheitunum. Ósmekklegt smáborgaralegt ólesanlegt hip hop klíku stafarugls krot eins og maður sá hér forðum í undirgöngunum á horni miklubrautar og lönguhlíðar var það sem utanbæjar emenem lovin’ kvikindið hafði fram að færa. Ekki misskilja, ég er alveg kúl og fíla grafítí en ég ákvað samt að greiða hugmyndinni ekki mitt atkvæði með því að skrifa ekki undir tilkynninguna. Mundu þið?

Dagarnir eru einsleitir, vakna, fer uppá skrifstofu og vinn að B.s. verkefninu mínu. Í eftirmiðdag fer ég heim og elda mat og held svo áfram með verkefnið, sofna. Verkefnið snýst um að gera notendavænt grafískt viðmót fyrir landbúnaðar-netkerfisvörð. Kannski ég ætti að fá fyrrnefnda grafítí listamanninn á ganginum til að aðstoða mig. Fá eitthvað svona nýtt lúkk í hugbúnað, personligt og venligt. Svona verða allir dagar næstu 8 vikurnar eða þar til ég skila inn. Ég er þó sæmilega jákvæður í dag en það gæti leynst neikvæðni í komandi færslum þegar líður á verkefnið. Kannski væri ráð að setja upp einhverskonar jákvæðnismæli við hverja færslu til að vara fólk við áður en það byrjar að lesa.
Eftir að ég skila verkefninu í mars ætla ég svo að flytja allar veraldlegar eigur mínar, gula nettó plastpokann, til Íslands. Þetta eru orðin tæp fjögur góð ár í víking hér í sjöppen og kominn tími til að halda heim svo maður missi nú ekki af fleiri Rockstar eða Idol þáttum. Kem til með að sakna margra góðra hluta hér en aðrir betri bíða heima. Hljómsveitin sem haldið hefur í mér lífinu síðastliðin ár verður því leyst upp í núverandi mynd í lok mánaðarins. Höfum ákveðið í góðu glensi að breyta nafninu í Atlastop þessar síðustu vikur og kannski spilum við á tónleikum í lok mánaðirins til að slútta þessu en það kemur betur í ljós síðar.

Tilfinningarbúntið og kvikmyndatröllið Árni Filippusson fagnar 25 ára afmæli sínu í dag og honum sendi ég kveðju.

January 12th, 2007 | Engin svör

  • Af netinu