Djobb og pleis

Ég er búinn að gefast upp að læra á bókhlöðunni í bili og er kominn í Álfatúnið til mömmu. Gott kaffi og góður matur. Það er krúsjal … og endurgjaldslaust. Við Sunna fjárfestum í íbúð í Stóragerði í vikunni. Þar eru góðir grannar eins og Gráa sjoppan fimm fimm og Mási gamli á lagernum í Austurveri að ógleymdum Hvassaleytisdónanum dinglandi með prjóninn. Einnig er þetta gamla húddið hans Bjarna Más og því hljótum við vernd Heiðagerðis meistarans. Í vikunni tók ég starfi hjá Kaupþingi í Ármúlanum þannig að það er ekki nema 5 mínútna gangur í vinnuna. Til að fagna þessu ætlum við í Bingó í Vinabæ í kvöld og svo kannski í einn kaldan.

February 9th, 2007 | Haukur

« Indriði opnar í Saltfélaginu | Afritið? »

1 svar

Well I truly enjoyed studying it. This post provided by you is very practical for proper planning.

send a free text message — December 3, 2010 @ 11:45

  • Af netinu