
Lager Indriða klæðskera hefur verið fluttur til landsins frá Danmörku. Því hefur verið ákveðið að opna tímabundna verslun undir merkjum Indriða í Saltfélaginu við Grandagarð 2 (gamla Ellingsen-húsinu). Verslunin opnar Sunnudaginn 18. febrúar og verður opin til 3. mars.
Það er annar helmingur Bartholins dúettsins, Styrmir Goðason, sem kemur sérstaklega frá Kaupmannahöfn til að standa vaktina í versluninni. Stymmi þekkir hvern og einn saum í þessum eðal klæðum eftir að hafa starfað í verslun Indriða frá því hún var á Skólavörðustíg. Ég hvet alla til að kíkja í heimsókn til Stymma og næla sér í hið fullkomna skyrtusnið, alvöru jakkaföt eða aðra fylgihluti herraklæðnaðs. Ég á þrennar skyrtur and me loves it long time.

Opnunartímar:
mán-fös: 10-18
lau: 11-17
sun 12-16
February 13th, 2007 | Haukur
ég hélt að þið strákarnir í bankanum “got that kinda ca$h”…
SP — February 19, 2007 @ 0:04