Það er von

Snjóstormurinn(hreinsi eldurinn) er svo sannalega kominn til Danmerkur. Hér er allt á kafi í snjó og það tók mig tæpa tvo tíma að komast með metró og lest á skrifstofuna í morgun. Mér leið svolítið eins og ísmanni þegar ég komst að því að allir aðrir starfsmenn fyrirtækisins eru heima í dag vegna snjós. Danir alltaf jafn hissa á hverju ári að það sé kominn snjór. Hvad? Sne? Nu?

Snór

Síðasta færsla sagði frá yfirvofandi glötun Danmerkur. Snjóstormurinn virðist þó hafa kveikt lítið ljós og vakið von. Ruslakarlarnir eru komnir aftur til starfa og berbrjósta umferðardömurnar eru frosnar í hel. Fyrsta sem kemur flestum í hug þegar Danmörk er nefnd er bjó… Lego. Lego er öllum kært og vekur upp hlýjar minningar hjá flestum. Þetta 74 ára fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið stollt dana í svo marga áratugi er búið að vera týnt og í tómu rugli undanfarin ár og hafa reglulega borist fregnir af gjaldþroti. Í þessu frábæra sjónvarpsviðtali segir Jørgen Vig Knudstorp, CEO-inn hjá Lego, á einlægan og trúverðugan hátt fyrir hvað Lego stendur og hvar rætur þess liggja og hvernig fyrirtækið muni rísa úr öskunni eins og fuglinn Fönix á árinu 2007.

Lego

Smellið hér til að horfa. (Einstaklega skemmtilegt fyrir áhugafólk um dansk-enskan hreim)

February 22nd, 2007 | Haukur

« Góði hirðirinn Daft Punk | 50 Danir »

Engin svör komin

  • Af netinu