Góði hirðirinn Daft Punk

Ást mín á hljómsveitinni Daft Punk hefur alla tíð verið heit og á stundum svolítið sveitt. Eins og 12 ára guttinn sem sagði föður sínum árið 1977 eftir að þeir sáu Star Wars í bíó að hann ætti sér enga ósk heitari en að eignast geislasverð, hefur mig alltaf langað í hjálm og hanska eins og Thomas Bangalter. Ég fæ tryllta nostalgíu við að rifja upp árið 1996 þegar ég og Magnoose sátum síðkvöldum yfir arfa slökum partyzone þætti á mtv í von um að sjá Daft Punk vídjó af þá nýútkomni Homework. Í dag er þetta öllu aðgengilegra á Youtube og á vafri mínu rakst ég þessa klippu sem sýnir hvaðan sömplin sem þeir nota koma.

Það er nákvæmlega svona sem á að smala með stæl. Þarna er ekki einhver einhver gaur í ljósbrúnum Timberland skóm með gullkeðjur að smella langþreyttum takti undir vel þekkt Sting eða Stevie Wonder lag og kallandi sig svo hitt-meiking-pródúser. Þarna er verið að grafa upp löngu gleymdar og oft ófáanlega gersemar. Þær svo klipptar, skekktar, skrúfaðar og glæddar nýmóðins tíðnisviðum í þeim göfuga tilgangi að fá ólíklegasta fólk til að stjórnlaust hrista mjaðmirnar. Í slíka endurvinslu þurfa menn skills. Ég meina kommon það eru ekki allir sem hafa hjarta og þor í að taka bút úr Barry Manilow og gera úr því fyrsta sætis hittara (að sjálfsögðu með fullri virðingu fyrir legendinu B.M.).

Fyrir þá allra hörðustu, tjekkið á trailernum fyrir Electroma. Svo hönnuðu þeir þetta súper svala stofuborð á sínum tíma fyrir Habitat sem mætti hvenær sem er prýða stofu mína.

February 26th, 2007 | Haukur

« Mike Strutter | Það er von »

2 svör

Það er vikked. Bingó er það sem all the cool kids are doin’ og Vinabær is the place to be.

haukur — February 27, 2007 @ 19:48

Gleymdi ad segja i mailnum og kann ekki ad commenta a flickr. Eg er komin með bingó membershipscard hérna í Eden. Við Hildur spilum saman á bók út af því að annars er allt of erfitt. Fengum línu, en föttuðum það of seint. Staersti vinningurinn var 2400 pund, hélt það myndi líða yfir mig þá.

hildur — February 27, 2007 @ 17:48

  • Af netinu