50 Danir

Danmörk er að breytast í Gommóru. Berar konur útá götu (sjá vídjó að neðan) og ruslakallarnir í verkfalli.

Svo spáir rosalegum snjóstormi (eldurinn sem hreinsar?).

Á maður ekki bara að fara koma sér?

February 20th, 2007 | Engin svör

Af verðandi setusári

Eftir þriggja vikna dvöl á Íslandi er ég kominn aftur til köben og hefst nú endaspretturinn á bs verkefninu. Í dag eru nákvæmlega þrjár vikur í skil og ég svitna óhóflega við að hugsa útí það. Groundhog Day var sýnd í flugvélinni. Myndin sem kenndi mér það að bandið í VHS spólum er ekki eylíft. Þrátt fyrir að hafa séð hana um það bil 100 sinnum nær hún ennþá að fanga mig. Bill Murray er rétti maðurinn til að sefa taugarnar þegar maður situr fastur í mannafýlu og sýklaúðandi blæstri.

Meira af nostalgíu nasli. Hér er sbs með skemmtilega yfirferð á Rokklingunum. Ég held ég eigi ennþá vínylplötuna í geymslunni hjá mömmu. Ætli það stefni í kombakk á Hótel Íslandi þar sem fólk fær enn á ný að svitna við syrpurnar Hlöðurokk og Sveiflurokk.

Eiríkur Hauksson kom sá og sigraði júróið um helgina sem er að ég held hið besta mál enda er hann pabbi hennar Ylfu vinkonu minnar. Átti samt von á að Heiða og Doktorinn myndu hafa þetta með Heilanum. Þau fengu mitt atkvæði í von um að notast yrði við enska þýðingu Mengella.

Vegna tollavandamála var ekki hægt að byrja selja Indriða fötin í Saltfélaginu á sunnudaginn eins og ég hafði skrifað. Stymmi segir að vonandi verði þetta komið í búðina á þriðjudag eða miðvikudag.

Að lokum vil ég benda mp3 blogg lesandi mac notendum á Peel forritið hans Hjalta Jakobssonar. Forritið er í anda rss lesara nema sækir mp3 fæla sem fylgja færslunum. Virkilega fallegt og nothæft forrit. Nokkur góð íslensk mp3 blogg: Egill Harðar, Dr. Gunni, Zúri, B-Town Hit Parade og Kontrapunkt. Nenni ekki linka í þessi útlensku.

February 19th, 2007 | 1 svar

  • Af netinu