Afritið?

Stabapen
Frá því að ég fékk fyrst greiðslukort í hendurnar hef ég kunnað vel við þennan kost að þurfa ekki að ganga með reiðufé, heldur að það nægji að hafa peningana inná bankareikningi og rétta svo fram kortið og kvitta þegar þarf að greiða fyrir eitthvað. Ég var orðinn góður í þessu, skrifaði nafnið mitt á millísekúndu og enginn gat lesið það, tók sjálfur gula afritið aftan af til að flýta fyrir, slíðraði svo kortið eins og kúreki slíðrar skothólkinn sinn í vestra. Í dag botna ég ekki neitt í neinu. Mér virðist sem það sé algjörlega handahófskennt eftir þjónustu hvort ég þurfi að kvitta eða ekki. Svo er ég stundum spurður hvort ég vilji afritið. Ég segi nei takk eins og flestir og hugsa smáborgaralega með sjálfum mér “Regnskógurinn maður” en svo réttir afgreiðslumaðurinn mér strimilinn til að sýna mér að hann hafi ekki straujað hádegismatinn sinn á kortið í leiðinni. Þá er ég með þau sjálfráðu viðbrögð að ég tek strimilinn og kvitta á hann en þá segir afgreiðslumaðurinn, um leið og hann grípur örvæntingarfullur í skrifhöndina mína, að það þurfi ekki kvitta og þá er ég orðin svo mikil taugahrúga útaf öllum þessum vandræðagangi að ég stel pennanum. Hver er prótókollinn í þessu ???

February 7th, 2007 | Engin svör

Ísland er landið

Það hefur lítið breyst á bókhlöðunni frá því ég lærði hér fyrir stúdentsprófin. Sama mínus jónaða loftið sem sýgur úr mér alla einbeitingu, sama dauðaþögnin sem virkar á mig eins og lyfseðilsskylt svefnlyf og sama starfsfólkið sem er með það samþykkt í starfssamningi að þau þurfi ekki að hvísla. Verkefnið mjakast áfram á hraða skriðjökulls þegar ég vil að það sé Jökulsárlón. Síðustu dagar hafa einkennst af starfsviðtölum og íbúðarkaupum. Meira um það síðar. Ólýsanlega sárt að tapa fyrir dönum í handboltanum. Ennþá sárar að fá email frá öllum dönsku samstarfsmönnunum morguninn eftir. Sum hver bara með markatölunum í subject og ekkert annað. Það svíður. Ég ætla aldrei aftur að mæla á dönsku. Ef þú átt leið um safnið þá er ég á 4.hæð.

February 1st, 2007 | Engin svör

  • Af netinu