Fylkið leyst

Margt búið að gerast eftir síðustu færslu. Skilaði verkefninu, missti næstum því tvisvar af fluginu heim, var knúinn til að skilja bestefars hjólið mitt eftir sökum sprengjuhættu, byrjaði í nýrri vinnu og bíð nú eftir að fara út að verja verkefnið. Hef ekkert heyrt í kennaranum ennþá sem þýðir sennilega að hann hefur fundið ávísunina aftast í skýrslunni. Bý nú á Fakkastígnum þar til við fáum Stóragerðið afhent í byrjun maí og er kominn með nýtt gsm símanúmer sem er 8566930. Fékk nýjan síma með svaðalegri myndavél og því von á flóði af myndum inná myndabloggið. Fór að sjá Weapons spila um daginn, hörkugott og glaðvært rokk í anda Pixies og fantagóður söngvari. Nóg af spennandi tónleikum framundan. Blonde Redhead á skírdag og Peter Björn and John 12.apríl á Nasaret. Nouvelle Vague 27.apríl í Listasafninu og svo Björk í Höllinni. Calm, fitter, healthier and more productive.

Meirasíðarmeir.

March 27th, 2007 | 2 svör

Líður eins og tvívíðu fylki

Vika í skil og ég er sveittari en lúsugt og leðurklætt ljón. Stefni að því að klára forritið í kvöld og skrifa svo skýrsluna það sem eftir er. Mér finnst réttlátt að ég vakni í fyrramálið og það sé búið að skrifa skýrsluna fyrir mig þar sem að ég fór með fjóra poka af fötum í hjálpræðisherinn í síðustu viku. Það er svo auðvelt að finna sér eitthvað annað að gera en að læra. Var til að mynda að viðra sjálfan mig á föstudaginn og gekk framhjá verslun sem selur vígalega og verklega flutningakassa. Féll í trans og keypti tíu stykki, fór með þá heim og pakkaði niður öllum mínum veraldlegu eigum á 54 mínútum. Allt var vandlega flokkað og allir kassar merktir. Þetta er svo ólíkt mér og lyktar langar leiðir af lærileiða.

15 ára anarkista unglingar með molotov kokteila og múrsteina er það sem allt hefur snúist um hér um helgina. Þessi skríli skemmdu og brenndu bíla og aðra hluti íbúa norrebro og fyrir það þykir mér sanngjarnt að rassskella þau opinberlega með naglaspítu. Besta í þessu öllu saman var þó að það eina sem þessir 300 krakkar fengu að éta í djeilinu var burger frá aðal merki alþjóðlegs kapítalisma, McDonalds.

March 5th, 2007 | 2 svör

  • Af netinu