Fylkið leyst

Margt búið að gerast eftir síðustu færslu. Skilaði verkefninu, missti næstum því tvisvar af fluginu heim, var knúinn til að skilja bestefars hjólið mitt eftir sökum sprengjuhættu, byrjaði í nýrri vinnu og bíð nú eftir að fara út að verja verkefnið. Hef ekkert heyrt í kennaranum ennþá sem þýðir sennilega að hann hefur fundið ávísunina aftast í skýrslunni. Bý nú á Fakkastígnum þar til við fáum Stóragerðið afhent í byrjun maí og er kominn með nýtt gsm símanúmer sem er 8566930. Fékk nýjan síma með svaðalegri myndavél og því von á flóði af myndum inná myndabloggið. Fór að sjá Weapons spila um daginn, hörkugott og glaðvært rokk í anda Pixies og fantagóður söngvari. Nóg af spennandi tónleikum framundan. Blonde Redhead á skírdag og Peter Björn and John 12.apríl á Nasaret. Nouvelle Vague 27.apríl í Listasafninu og svo Björk í Höllinni. Calm, fitter, healthier and more productive.

Meirasíðarmeir.

March 27th, 2007 | Haukur

« Björk í höllinni | Líður eins og tvívíðu fylki »

2 svör

Hellú!
Það er bara ekkert verið að slaka á heima á Fróni.

Hvenær kemur þú annars aftur til Baunalands?

Jackie — April 4, 2007 @ 19:23

Bloggið dautt í kjölfar nýrrar vinnu?

SP — March 29, 2007 @ 20:33

  • Af netinu