Klukkan 7 í morgun byrjaði politiet að rýma Ungdomshuset á nörrebro. Sikkerhed-nælu pönkararnir er því allir mættir með gælurotturnar sínar og láta múrsteinana dynja á löggunni. Davíð er okkar maður á svæðinu og er búinn að pósta nokkrum on field myndum á flickrinn sinn. Svo geta áhugasamir kíkt á dönsku tíu fréttirnar. Í hvert sinn sem ég heyri umfjöllun um þetta þá kemur alltaf uppí hug mér lagið Police men in the street, arrest me með Jóni Gnarr og Nefrensli.
March 1st, 2007 | 2 svör
Þegar ég var að fara sofa í gærkvöldi kveikti ég á sjónvarpinu svona rétt til að steindrepast úr leiðindum yfir enn einum danska raunveruleikaþættinum og sofna því fljótt. Ég lennti hinsvegar á þætti á MTV með snillingi einum að nafni Paul Kayne þar sem hann bregður sér í gervi Mike Strutter’s. Mike Strutter er orðljótari en allt og minnir mann ótrúlega mikið á kókaínsniffandi lögfræðinginn sem Sean Penn lék í Carlito’s Way. Eins og allt þá er hægt að finna nokkrar klippur úr þáttunum hans á YouTube. Hér er sú besta sem ég fann.