New York fever

HitiNew York-búinn Ziggy Palmer er staddur hér á landi þessa dagana. Frá því ég kynntist honum hefur aldrei farið framhjá mér hversu mikinn metnað maðurinn hefur fyrir hreinum bílum. Hvort sem ekið hefur verið um á Lada Safir (geimsteinn sem seinna varð mín eign) eða öðrum verðmeiri eðalvögnum þá eru þeir alltaf stífbónaðir og glansandi hreinir. Í gær var ég þess heiðurs njótandi að hljóta einn á einn kennslu í alþrifi á bílum frá Zalmer. Þriggja klukkutíma Vax on Vax Off á Ægóinum hennar Sunnu (hún er sko útí NY, supplæs pikköpp skiluru) á meðan Siggi tókst á við ögn stærri bifreið á sama tíma. Hverrar mínútu virði. Til að njóta árangursins í góða veðrinu sem var í gær var rúllað niður í bæ á bílnum hans Sigga. Nú verður þetta áhugavert. Í kyrrstæðri bílaröð niður Skólavörðustíginn dúkkar upp farþegamegin ölóður ógæfumaður með bokku í teygðum brjóstvasanum og brennandi filter í hvítum munnvikunum. Maðurinn taldi sig greinilega eiga í einhverjum útistöðum við bifreiðina og byrjar að þjösnast á nýbónuðum og glansandi hliðarspeglinum og gerir sig líklegan til að reyna ná honum af. Áður en tími gafst til að blikka augum var okkar maður Ziggy Palmer rokinn útúr bílnum í Nú Jork stundarbrjálæði á borð við það sem maður hefur lesið um, heyrt sungið um og séð svo oft í bíómyndum vestan af hafi. Með augnaráð sjóðheits ítalsks pulsusala sem búinn er að standa úti á götuhorni allan daginn í hitabylgju, æðir Salmer upp að ógæfumanninum og á við hann snögg og hnitmiðuð orðaskipti með kreppta hnefa til að undirstrika heiftina. Við þessa ógnun sem átti sér stað á innan við 3 sekúndum biðst speglajuðarinn vægðar og hrökklast undan með foglumæltan afsökunartón og ótta í augum eins og hann hafi séð draug. New York er stór borg þar sem hættur leynast á hverju horni. Þarna var á ferðinni hvítur maður sem býr í svartasta hverfi Brooklyn og lætur ekki eyðileggja fyrir sér 3 tíma bón-djobb. Verst að taglið fékk fyrir stuttu að fjúka.

April 15th, 2007 | Haukur

« Inflastikas | Björk í höllinni »

3 svör

Snilldarsaga…..

BÖB — April 26, 2007 @ 1:34

Yes, but quite frankly I think that it’s more a matter of relative objectivity. A way of chasing at noun to make it a verb that constutie an angelo-saxon turn of phrase, in order to change the ice in the land to something comprehensible to the layman.

Martin — April 19, 2007 @ 23:01

Minnir nú aðeins á söguna sem þú sagðir mér forðum daga þar sem þú varst í skóm öl-óða ógæfumannsins sem togaðir eitthvurt unglingsgrey í hormónasjokki út úr bílnum og hótaðir að berja hann ef hann gæfi þér ekki sígarettu.
Það er gott þegar fólk sér spegilmynd sjálf síns, nokkrum árum áður, og hefur greinilega lært sína lexíu.
Annars fær Siggi kredit fyrir framkomuna.

styrmir — April 15, 2007 @ 22:05

  • Af netinu