Gömul kona í kaupbæti

Sú gamlaÞað hefur verið lítill tími aflögu undanfarið og því ekki mikið sett hingað inn. Búin að vera mikil yfirvinna í køb ting ásamt því að við Sunna fenguð nýju íbúðina. Öll kvöld því búin að fara í að koma íbúðinni í stand svo hægt sé að flytja inn um helgina. Það er einmitt aðal inntak þessara færslu. Hjálp! Planið er að mála íbúðina á föstudag og laugardag en flytja svo inn á sunnudaginn. Allar auka hendur eru vel þegnar. Fullskipað virðist vera í flutningana en þeir sem hafa tíma til að grípa í pensil í 1-2 tíma á morgun eða hinn verður tekið fagnandi með veigum og æsispennandi frásögn af gömlu konunni sem fylgdi með íbúðinni í kaupbæti.

May 10th, 2007 | 5 svör

  • Af netinu