Lóa Margrét hefur verið á sundnámskeiði síðustu 10 vikurnar og þykir það nú ekki leiðinlegt! Hún fer í kaf og er send á milli foreldranna, fer af bakkanum og ofan í, stendur sjálf í lófa manns og leikur fleiri kúnstir. Ekki spillti það heldur fyrir að Kristinn Rafn var með svo þau gátu tekið höndum saman um að busla og skvetta á foreldrana.
Lóa Margrét og Kristinn Rafn eru svo sæt saman alltaf að uppgötva hvort annað meira og meira. Lóa var líka að leika hjá ömmu og afa í Álandinu og missti þar snuðið sitt ofan á nefið sitt en lét það nú ekki á sig fá og hélt leiknum bara áfram. Lóa komst í leikgrindina hjá Axel Erni vini sínum sæta og fannst það ÆÐI, það var svo mikið af nýju dóti og svo gaman að heyra í strákunum spjalla, Kristni og Axel.
Lóa er að elska sundið, buslar og tístir og fer í kaf eins og selur. Svo er hún farin að velta sér af bakinu yfir á magann og aftur yfir á bakið, staldrar þar við, togar í tærnar og fer svo aftur af stað! Lóa Margrét er líka farin að brake-dansa, með vinstri öxlina í gólfinu, reigir hún höfuðið aftur og spyrnir svo með hægri fætinum í gólfið og fer þannig 360° á leikteppinu hægri vinstri.
Lóa er byrjuð í ungbarnasundi og finnst það rosa fjör! Alsæl með sig, setur báðar hendur upp í sig, krossleggur fætur og stingur rassinum upp í loft, bara svona eins og sunddrottningar eiga að gera þetta. Svo hefur hún mikið verið að spjalla við Kristinn Rafn vin sinn og Líf Karlottu vinkonu sína upp á síðkastið.