Inflastikas

Lítið verið að gerast hér á síðunni uppá síðkastið enda mikil törn í vinnunni eins og stendur. Gat þó ekki orða bundist yfir eftirfarandi. Góðvinur minn og hljómsveitarmeðlimurinn Jonas Graverholt á sér hliðar-sjálf þegar hann leikur með hljómsveit sinni Inflastikas. Hljómsveitin er skipuð dönskum æskuvinum Jonas og spila þau á bjórflöskur með stút á munni.

Inflastikas

Hér er videó af þeim að spila læf sem enginn má láta fram hjá sér fara, þvílík er spilagleðin og samræmingin.

Áhugasamir geta séð þau í lifandi mynd á Roskilde festival í ár.

April 25th, 2007 | Haukur | 3 svör

New York fever

HitiNew York-búinn Ziggy Palmer er staddur hér á landi þessa dagana. Frá því ég kynntist honum hefur aldrei farið framhjá mér hversu mikinn metnað maðurinn hefur fyrir hreinum bílum. Hvort sem ekið hefur verið um á Lada Safir (geimsteinn sem seinna varð mín eign) eða öðrum verðmeiri eðalvögnum þá eru þeir alltaf stífbónaðir og glansandi hreinir. Í gær var ég þess heiðurs njótandi að hljóta einn á einn kennslu í alþrifi á bílum frá Zalmer. Þriggja klukkutíma Vax on Vax Off á Ægóinum hennar Sunnu (hún er sko útí NY, supplæs pikköpp skiluru) á meðan Siggi tókst á við ögn stærri bifreið á sama tíma. Hverrar mínútu virði. Til að njóta árangursins í góða veðrinu sem var í gær var rúllað niður í bæ á bílnum hans Sigga. Nú verður þetta áhugavert. Í kyrrstæðri bílaröð niður Skólavörðustíginn dúkkar upp farþegamegin ölóður ógæfumaður með bokku í teygðum brjóstvasanum og brennandi filter í hvítum munnvikunum. Maðurinn taldi sig greinilega eiga í einhverjum útistöðum við bifreiðina og byrjar að þjösnast á nýbónuðum og glansandi hliðarspeglinum og gerir sig líklegan til að reyna ná honum af. Áður en tími gafst til að blikka augum var okkar maður Ziggy Palmer rokinn útúr bílnum í Nú Jork stundarbrjálæði á borð við það sem maður hefur lesið um, heyrt sungið um og séð svo oft í bíómyndum vestan af hafi. Með augnaráð sjóðheits ítalsks pulsusala sem búinn er að standa úti á götuhorni allan daginn í hitabylgju, æðir Salmer upp að ógæfumanninum og á við hann snögg og hnitmiðuð orðaskipti með kreppta hnefa til að undirstrika heiftina. Við þessa ógnun sem átti sér stað á innan við 3 sekúndum biðst speglajuðarinn vægðar og hrökklast undan með foglumæltan afsökunartón og ótta í augum eins og hann hafi séð draug. New York er stór borg þar sem hættur leynast á hverju horni. Þarna var á ferðinni hvítur maður sem býr í svartasta hverfi Brooklyn og lætur ekki eyðileggja fyrir sér 3 tíma bón-djobb. Verst að taglið fékk fyrir stuttu að fjúka.

April 15th, 2007 | Haukur | 3 svör

  • Af netinu