Mér hefur alltaf fundist leiðinlegt að þurfa að viðurkenna fyrir útlenskum vinum og kunningjum að hafa aldrei farið á tónleika með Björk. Why not? Hafa verið vinsæl viðbrögð hjá þeim. Næst þegar ég verð spurður get ég svarað stoltur “Hell yeah!!!” því ég var að koma af tónleikunum með henni og Hot Chip. Frábærir tónleikar!!! Antony kom og söng með Björk lag af nýju plötunni Volta og fékk það hárin til að rísa. Nýju lögin hljómuðu vel og lofa góðu. Fátt var þó jafn töff og þegar Björk fékk alla raftónlistarnörda í húsinu til að pissa í buxurnar þegar hún lyfti hulunni af reacTable. Mikið hefur verið talað um reacTable á raftónlistar bloggum eftir að þetta vídjó byrtist á youtube í lok síðasta árs og hafa sumir sagt að þetta muni breyta hvernig raftónlistarmenn komi fram.
Reactable er raftónlistar undur þar sem margir notendur geta samtímis haft áhrif á tónlistina með því að leggja kubba sem geta táknað mismundandi filtera, generatora eða modulatora á upplýst borð.
Hot Chip mættu svo eldhressir á svið á eftir Björk og spiluðu lög af óútkominni plötu sinní í bland við gamla slagara. Einn meðlima (þessi í rauðu skyrtunni) fór á kostum með fáránlega mjúkum danshreyfingum í anda crazy legs.
April 10th, 2007 | Haukur | 3 svör