Líður eins og tvívíðu fylki

Vika í skil og ég er sveittari en lúsugt og leðurklætt ljón. Stefni að því að klára forritið í kvöld og skrifa svo skýrsluna það sem eftir er. Mér finnst réttlátt að ég vakni í fyrramálið og það sé búið að skrifa skýrsluna fyrir mig þar sem að ég fór með fjóra poka af fötum í hjálpræðisherinn í síðustu viku. Það er svo auðvelt að finna sér eitthvað annað að gera en að læra. Var til að mynda að viðra sjálfan mig á föstudaginn og gekk framhjá verslun sem selur vígalega og verklega flutningakassa. Féll í trans og keypti tíu stykki, fór með þá heim og pakkaði niður öllum mínum veraldlegu eigum á 54 mínútum. Allt var vandlega flokkað og allir kassar merktir. Þetta er svo ólíkt mér og lyktar langar leiðir af lærileiða.

15 ára anarkista unglingar með molotov kokteila og múrsteina er það sem allt hefur snúist um hér um helgina. Þessi skríli skemmdu og brenndu bíla og aðra hluti íbúa norrebro og fyrir það þykir mér sanngjarnt að rassskella þau opinberlega með naglaspítu. Besta í þessu öllu saman var þó að það eina sem þessir 300 krakkar fengu að éta í djeilinu var burger frá aðal merki alþjóðlegs kapítalisma, McDonalds.

March 5th, 2007 | Haukur | 2 svör

Rydning af Ungdomshuset er i gang

Mynd frá DabbaKlukkan 7 í morgun byrjaði politiet að rýma Ungdomshuset á nörrebro. Sikkerhed-nælu pönkararnir er því allir mættir með gælurotturnar sínar og láta múrsteinana dynja á löggunni. Davíð er okkar maður á svæðinu og er búinn að pósta nokkrum on field myndum á flickrinn sinn. Svo geta áhugasamir kíkt á dönsku tíu fréttirnar. Í hvert sinn sem ég heyri umfjöllun um þetta þá kemur alltaf uppí hug mér lagið Police men in the street, arrest me með Jóni Gnarr og Nefrensli.

March 1st, 2007 | Haukur | 2 svör

  • Af netinu