Mike Strutter

David KleinfeldÞegar ég var að fara sofa í gærkvöldi kveikti ég á sjónvarpinu svona rétt til að steindrepast úr leiðindum yfir enn einum danska raunveruleikaþættinum og sofna því fljótt. Ég lennti hinsvegar á þætti á MTV með snillingi einum að nafni Paul Kayne þar sem hann bregður sér í gervi Mike Strutter’s. Mike Strutter er orðljótari en allt og minnir mann ótrúlega mikið á kókaínsniffandi lögfræðinginn sem Sean Penn lék í Carlito’s Way. Eins og allt þá er hægt að finna nokkrar klippur úr þáttunum hans á YouTube. Hér er sú besta sem ég fann.

Nokkrar fleiri góðar hér.

March 1st, 2007 | Haukur | 3 svör

Góði hirðirinn Daft Punk

Ást mín á hljómsveitinni Daft Punk hefur alla tíð verið heit og á stundum svolítið sveitt. Eins og 12 ára guttinn sem sagði föður sínum árið 1977 eftir að þeir sáu Star Wars í bíó að hann ætti sér enga ósk heitari en að eignast geislasverð, hefur mig alltaf langað í hjálm og hanska eins og Thomas Bangalter. Ég fæ tryllta nostalgíu við að rifja upp árið 1996 þegar ég og Magnoose sátum síðkvöldum yfir arfa slökum partyzone þætti á mtv í von um að sjá Daft Punk vídjó af þá nýútkomni Homework. Í dag er þetta öllu aðgengilegra á Youtube og á vafri mínu rakst ég þessa klippu sem sýnir hvaðan sömplin sem þeir nota koma.

Það er nákvæmlega svona sem á að smala með stæl. Þarna er ekki einhver einhver gaur í ljósbrúnum Timberland skóm með gullkeðjur að smella langþreyttum takti undir vel þekkt Sting eða Stevie Wonder lag og kallandi sig svo hitt-meiking-pródúser. Þarna er verið að grafa upp löngu gleymdar og oft ófáanlega gersemar. Þær svo klipptar, skekktar, skrúfaðar og glæddar nýmóðins tíðnisviðum í þeim göfuga tilgangi að fá ólíklegasta fólk til að stjórnlaust hrista mjaðmirnar. Í slíka endurvinslu þurfa menn skills. Ég meina kommon það eru ekki allir sem hafa hjarta og þor í að taka bút úr Barry Manilow og gera úr því fyrsta sætis hittara (að sjálfsögðu með fullri virðingu fyrir legendinu B.M.).

Fyrir þá allra hörðustu, tjekkið á trailernum fyrir Electroma. Svo hönnuðu þeir þetta súper svala stofuborð á sínum tíma fyrir Habitat sem mætti hvenær sem er prýða stofu mína.

February 26th, 2007 | Haukur | 2 svör

  • Af netinu